28.1.2008 | 10:22
Vesen að vera með þennan kraga.
Mikið svakalega er fúlt að þurfa að vera með þennan leiðinda kraga um hálsinn
. Maður rekst í allt og festir sig í öllu. Getur varla leikið sér eða knúsast almennilega með þennan ófögnuð. Annars er Goði ótrúlega góður að vera með kragann á sér. Við reynum að taka hann af honum í smástund í einu svo hann geti klórað sér almennilega og tekur hann því vægast sagt fegins hendi. En hann fer líka fljótlega að tékka aðeins á sárinu sínu þannig að það þarf mjög mikið eftirlit með honum þegar kraginn er ekki á. Farið er að sjá á húsgögnum og fótleggjum heimilisfólks og munum við fagna því mjög þegar hann losnar við kragann endanlega þann 4. feb.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 21241
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.