8.2.2008 | 16:56
Athyglisverð bloggfærsla
Í ljósi þess sem við erum að fara gera með hann Goða og þær pælingar sem hafa átt sér stað þá er þessi bloggfærsla hérna nokkuð athyglisverð lesning. Við kíkjum öðru hvoru á bloggið hennar Jónu þar sem hún er jú að mörgu leyti í svipuðum sporum og við og er hún mjög dugleg að leyfa okkur hinum að fylgjast með daglegu lífi fjölskyldu sinnar. Það er ótrúlega margt í þessari færslu sem er keimlíkt okkar upplifun og mjög margt sem við könnumst vel við.
Í þessari tilvitnun hérna er t.d. hægt að skipta út nöfnum og setja Berg og Goða inn því þetta er nákvæmlega eins og hjá okkur:
"Það tók Vidda smá tíma að venjast Ian þar sem hann getur verið hávær og harðhentur, en Viddi uppgötvaði smám saman að nálægt Ian er gott að vera. Ian Anthony er sá eini í fjölskyldunni sem deilir matnum sínum með Vidda og Ian er sá eini sem Viddi fær að sleikja eyrun á, eins lengi og hann lystir."
Miðað við hvernig hefur gengið hjá þessari ágætu fjölskyldu með hann Vidda hund þá er ekki ástæða til annars en að fyllast bjartsýni á það sem við erum að gera með hann Goða okkar.
Kv. Kej.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta lofar góðu...
Ekki spurning...
Jói frændi (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 17:46
Kveðja
Jói frændi (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 17:53
Vorum að skoða myndirnar,þær tala sínu máli.Mynd númer 8 finnst mér óborganleg.Gyða er ofsalega örugg og sæl líka.Kv H og L .E
Hildur (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.