Já komdu með í gamlárspartý....

...gamlárspartý, gamlárspartý.  Við skulum skjóta upp rakettummmmmm....LoL

Þó svo að þessir 10 dagar sem Bergur hefur beðið eftir allt árið krefjist gríðarmikillar orku af okkur sem höfum fengið það hlutverk að vera foreldrar hans, þá get ég ekki annað sagt en að það séu töluverð forréttindi að fá að upplifa þessa miklu eftirvæntingu og hrifningu sem fylgir þessu þráhyggjukennda áhugamáli hans. Síðustu 2 dagarnir á árinu 2008 voru mjög skemmtilegir og munu seint líða okkur úr minni.  Ég ætla að reyna að setja atburði þessara daga upp í smá tímaröð og leyfa ykkur að gægjast aðeins inn í hugarheim rakettudellustráksins míns.Tounge

Bergi var boðið að koma í heimsókn á flugeldasölu björgunarsveitarinnar í grindavík á þriðjudagsmorgninum (30.des) og gekk af þeim sökum afar erfiðlega að sofna kvöldinu áður. Það hafðist þó þegar farið var að nálgast miðnættið.  

30.des

  • 06:14 Bergur vaknar og spyr hvort að nóttin sé búin. Honum er tjáð af svefnstjörfum foreldrum að svo sé ekki heldur þvert á móti.
  • 08:30 Bergur vaknar og segist ætla að fara til grindavíkur.  Allar mútutilraunir til áframhaldandi svefns brotna líkt og brim á bergvegg.
  • 11:45 Bergur og pabbi hans eru mættir fyrir utan flugeldasölu björgunarsveitarinnar í grindavík. Honum hafði verið boðið að koma og skoða aðeins á bakvið borðið áður en að salan opnaði.  Við þáðum það með þökkum og sáum fram á að geta skoðað okkur vel um og verslað síðan eitthvað í kjölfarið. Við erum síðan slegnir algerlega út af laginu þegar björgunarsveitarfólkið tekur upp a því að hlaða Berg gjöfum.  Hann fer heim með derhúfu, límmiða, 2 glóandi partýglös,vasaljós og eitt stykki af Gunnlaugi Ormstungu skotköku.  Ekkert smá höfðinglegar móttökur sem við fengum hjá þessu frábæra fólki.
  • 13:50 Fer með pabba sínum út að skjóta upp einhverju smádrasli
  • 16:20 Séra Skúli bankar uppá hjá okkur með ekki eina heldur 2 hlussu skotkökur.  "Guðmundur almáttugur" segir Bergur og sérann fær risaknús frá Begga.
  • 20:00 Lætur pabbi loks undan þrýstingi um að fara út að skjóta upp einhverju dóti.  Ég sagði honum að fara yfir til Unnars og Elvars í næsta húsi, banka uppá og segja strákunum að við ætluðum að skjóta aðeins upp.  Bergur hleypur yfir ,æðir inn án þess að gera nokkur boð á undan sér og æpir yfir allt " Elvar, rakettur !!" og hleypur síðan sem fætur toga til baka.
  • 23:40 Sofnar seint og um síðir með rakettupokann, rakettukassann og fjölskyldupakkann á gólfinu hjá sér. Vildi fyrst hafa fjölskyldupakkann á koddanum við hliðina á sér með sængina breidda yfir en pabbi strækaði á það. 
31.des - 01.jan Gamlársdagur og Nýársmorgun
  •  05:30 Vaknar og vill fara að skjóta upp.  "Heyrðu pabbi, er nóttin búin.  Hægt að skjóta upp??"  Pabbinn blótar í hljóði þegar hann rekur litlu tánna í hurðarkarminn þar sem hann ráfar svefndrukkinn inn til unglingsins og reynir síðan að  hnoða allri fyrstu önninni í rökfræðum 103 í eina setningu en dettur þó ekkert betra í hug en "...ennþá nótt úti, sofa aðeins meira".
  • 09:00 Vaknar og allar tilraunir til áframhaldandi svefns eru árangurslausar. Hefur litla sem enga matarlyst og nennir ekkert að fylgjast með barnaefni í sjónvarpinu.  Rogast um húsið með rakettupokann sinn, fjölskyldupakkann og rakettukassann líka. 
  • 13:35 Fer út með pabba sínum að kveikja í smádrasli.  Var búin að suða frá því hann vaknaði en af tillitssemi i við aðra íbúa i hverfinu dró pabbinn þetta á langinn eins og hægt var. 
  • 15:14 Bankað á dyrnar og skuggi af óvenju hávöxnum einstaklingi sést í gegn um glerið.  Fyrir utan stendur hann Halli Valli með risa rakettu sem búið er að árita sérstaklega fyrir Berg.  Halli Valli var liðveisla og stuðningur við hann Berg um tíma og hefur alla tíð síðan reynst honum mikill og góður vinur.  Bergur er mjög ánægður með að hafa fengið " Halla Valla rakettu".
  • 16:03 Aftur er bankað á dyrnar og nú er hann Diddi mættur til að heilsa aðeins upp á Berg á þessum stóra degi.  Diddi er núverandi liðveisla fyrir hann Berg og algerlega frábær í því hlutverki.  Diddi bað Berg síðan að koma aðeins með sér út í bíl og sótti þar eina forláta skotköku sem hann gaf svo Bergi.  Hamingjuvísitala Bergs tók umtalsvert stökk við þessa gjöf og vissi hann varla í hvorn fótinn hann átti að stíga.  
  • 17:30 Fer í gamlársveislu hjá Ömmu og Afa með rakettudótið sitt. 
  • 19:40 Förum út i sandgerði á brennu og flugeldasýningu.  Höfum farið þarna á hverju ári í nokkur ár og aldrei verið svikinn af flugeldasýningunni þeirra hjá björgunarsveitinni Sigurvon í sandgerði. Bergur er rosalega ánægður með lífið. 
  • 21:00 Er kominn aftur til Ömmu og Afa í gamlárspartý og fer til skiptis út á pall að fylgjast með hvort verið sé að skjóta upp og niður í skúr að fara yfir hvað sé til af flugeldum. 
  • 22:00 Er farinn út með frænda sínum og frænku að skjóta aðeins upp
  • 22:30 Skaupið að byrja og pabbi gerir sig kláran í að fara út með Begga og leyfa öðrum gestum að njóta skaupsins.  Að þessu sinni er honum snúið við af ömmu Möggu sem komin er í kuldagallann sinn og sagt að fara inn og horfa á skaupið. 
  • 23:30 Skaupið búið og allir búa sig út. Hin einstaka íslenska allsherjar flugeldasýning er að hefjast og mun standa í u.þ.b. eina klst. 
 
horfir_upp.jpgBergur stendur hugfangin og fylgist með þessu einstaka sjónarspili með öryggisgleraugun sín og derhúfuna sem hann fékk hjá flugeldasölu björgunarsveitarinnar í grindavík.  Hann sækir hvert flugeldadótið af öðru og kemur með út.  Foreldrar hans mega hafa sig alla við að passa að hann sæki úr réttu góssi. Hann fer nokkrum sinnum með pabba sínum og "aðstoðar" við að tendra kveikinn og hleypur síðan til baka með rosalegum tröllahlátri LoL. En aðallega horfir hann á sjónarspilið á himninum með hendur í vösum og segir bara "vááááá...".
 
  • 00:30 Mestu sprengingarnar búnar og allir nema Bergur og foreldrar hans eru farnir inn.  Mamma og systir hans koma út með 4 glös og saman skálar fjölskyldan fyrir nýju ári.
  • 01:15 Kveðjum gamlársveisluna og höldum heim á leið. Bergur er ennþá úti að fylgjast með og hefur eiginlega ekki fengist inn frá kl. 22:00. 
  • 03:00 Nær loksins að sofna eftir nokkrar tilraunir.  Er mjög spenntur og á erfitt með að ná sér í ró. 
  • 10:00 Vaknar og vill fara að skjóta upp.  Pabbi skríður upp  í til hans og fær hann til að kúra til hádegis.
  • 12:00 Vaknar og fer að leita að rakettupokanum sínum. 

skur.jpgÞannig gengu áramótin í garð hjá okkur að þessu sinni.  Mikið fjör og mikið gaman.  Það er eiginlega ekki hægt að lýsa með orðum þessum undarlega hugarheimi sem við fáum að fylgjast með þegar þessir dagar í kring um áramótin koma og fara. Við teljum það mikil forréttindi að fá að fylgjast með þessari hrifningu svona nálægt.  Við erum líka meðvituð um hlutverk okkar foreldrana á þessum dögum.  Það er undir okkur komið að upplifunin verði með sem jákvæðasta móti. Þá meina ég ekki að við splæsum nógu miklum peningum í flugelda heldur að samveran og stússið í kring um flugeldana verði jákvæð og skemmtileg.  Það kostar svosem töluverða orku og þegar jólafríinu lýkur er orkutankurinn oftast tæmdur og varatankurinn líka.  En þeirri orku er vel varið, líkt og peningarnir sem flugeldasala björgunarsveitanna fær. Wink

Við óskum svo öllum sem hafa nennt að fylgjast með okkur á þessu bloggi gleðilegs árs og þökkum fyrir samveruna á síðasta ári hvort sem hún var í net eða raunheimi.  Smile

Kv.

Kej. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að lesa þessa frásögn! Sá hlýtur að vera eftir sig eftir allan spenninginn, blessaður kallinn ( : Óska ykkur öllum gleðilegs árs og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst. Hvernig væri nú að þið skötuhjúin kæmuð í bæinn og fengjuð ykkur snæðing og bíó með okkur? Hafið það bak við eyrað þegar næsti möguleiki á pössun kemur upp ( ;
Áramótaknús - nýtt ár, ný tækifæri!!
HGG

Hulda (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 23:42

2 Smámynd: Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Takk fyrir góðar kveðjur - þú ert ein af fáum sem stendur þig í að kvitta .  Jú við þyrftum að gera e-ð huggulegt saman.  Já það eru aldeilis spennandi tímar framundan - en nánar um það við tækifæri.

Knús til baka skvís.

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, 8.1.2009 kl. 19:11

3 identicon

Hæ hæ eru þið búin að sjá sólskinsdrenginn mæli með henni ;O)

Væri líka gaman að hafa hitting fljólega

 Kv Sóley

Sóley (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 09:31

4 Smámynd: Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Ég á yndislega mágkonu sem vildi gefa okkur miða á sunnudaginn - en ég held að ég meiki ekki þessa mynd í bíó.  Hrædd um að grenja út í eitt því þetta er to close to home.  Þeir eru svo rosalega líkir nema Keli er yngri en Bergur.  Kanski er maður bara algjör mús .  Svo var ég að heyra í gær að þetta væri ekki væl - bara rosalega góð heimildamynd.

Já nauðsynlegt að huga að hittingi.  Verst að það flæðir út úr með verkefni hjá mér.  Var að taka að mér auka kennslu og í náminu og í vinnunni minni og að huga að fermingu.  Veit ekki alveg hvernig ég fer að þessu.  Gott að hafa Krissa heima til að halda utan um heimilið.

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, 13.1.2009 kl. 08:30

5 identicon

Mæli algjörlega með að þið farið og sjáið myndina, ætla aftur á hana í vikuni, mæli reyndar líka með að þið takið tissjú hehe ég átti alla vega pínu erfitt en bara í lokin á myndini ;O)

 Ertu með sjálfseyðingarkvöt ekkert smá mikið að gera hjá þér, eins gott að Krissi er heima segji nú ekki annað, :O)

Sóley (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir
Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Þetta blogg er dagbók 4 manna fjölskyldu í Reykjanesbæ.

Upphaflega var hugmyndin með þessu bloggi að leyfa áhugasömum að fylgjast með framvindu þjálfunar á border collie hundi sem við fengum um árámótin 2008. Markmið þjálfunar var m.a. að kenna hundinum honum Goða að passa upp á hann Berg sem er einhverfur 13 ára drengur. Við vildum líka geta horft til baka og skoðað þetta aðeins í baksýnisspeglinum. 

Bloggið hefur síðan þróast aðeins  og hinar og þessar hugleiðingar hafa dottið hingað inn og ekkert endilega tengdar honum Goða sem bloggið er þó nefnt í höfuðið á. 

Allir þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með okkur og jafnvel koma með innlegg eru velkomnir. Fjölskyldumeðlimir eru:

Kristinn Edgar Jóhannsson

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Bergur Edgar Kristinsson

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Goði Freyr Gyðuson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Teppi
  • Hetta
  • ...imag0101
  • ...090228_2_31
  • ...skur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband