Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
24.4.2009 | 15:50
Að vera atvinnulaus.
Það er afar sérstök upplifun að vera atvinnulaus. Ég hef svosem upplifað það áður á yngri árum að ganga í gegn um atvinnuleysistímabil en það breytir óneitanlegu nokkuð miklu um slíka stöðu að vera komin með þær skuldbindingar sem fylgja því að reka fjölskyldu. Í vetur var ég atvinnulaus í c.a. 6 mánuði og það eru margir vinklar á slíku ástandi sem vert er að skoða.
Það er mjög mikilvægt við slíkar aðstæður að vera eins raunsær og hægt er og missa ekki sýnar á heildarmyndinni. Í upphafi var staðan ekkert verri en þannig hjá mér að ég þurfti ekki að mæta í vinnu en var þó enn á launum næstu 4 mánuðina. Ég gat því verið svona bara eins og Lýður í Lotto auglýsingunum og setið heima með kaffibolla og keypt mér hurð á e-bay. í 4 mánuði þ.e.a.s. Eftir þann tíma yrði þetta þó gjörbreytt og erfiðast fannst mér að gleyma mér ekki í svartsýnishugsunum yfir því hver staðan yrði að loknum uppsagnarfrestinum.
Óvissan var það langerfiðasta á þessum tíma og ekki bætti neitt úr skák að allt í kring um okkur virtist veröldin vera að hrynja eins og spilaborg og ekkert af því sem maður hafði áður þekkt sem öruggt gat nú talist tryggt. Þetta tók langmest á og var langerfiðast að sjá í jákvæðu ljósi. Í byrjun desember fékk ég síðan ákveðið vilyrði um vinnu með vorinu og bara það að hafa eitthvað annað en algera óvissu um framtíðina létti alveg ótrúlega mikið af okkur áhyggjum. Það var þó eitthvað sem hægt var að horfa til og mátti líkja þessu sem litlu vonarljósi sem hengt hafði verið upp á dagsetninguna 1. apríl.
Það er merkilegt hvað það markar okkur mikið að hafa vinnu. Það fyrsta sem þú spyrð einhvern sem þú hefur ekki séð lengi er: "og hvað ertu að gera þessa dagana, hvar ertu að vinna ?" Reyndar var stemmingin í þjóðfélaginu í vetur þannig að það var eiginlega lítið hægt að skammast sín fyrir að vera atvinnulaus. Það voru bara svo margir í þeirri stöðu og svo lítið framboð af vinnu að samfélagið gat ekki annað en samþykkt þá stöðu að vera án atvinnu. En mér fannst það samt erfitt og leið aldrei vel þegar ég þurfti að svara slíkum spurningum.
Og það voru fleiri en ég sem leið þannig. Ég man eftir einu atviki þegar ég og Gyða vorum stödd inni í bakaríinu á Fitjum að fá okkur snúð og með því . Þá sé ég þar einn gamlan vinnufélaga frá fyrri tíð. Og að sjálfsögðu spyr ég hann hvað sé að frétta, hvað hann sé að gera. Hans fyrsta svar var að segja mér að hann væri nú með þetta fyrirtæki og hann hefði þessa viðskiptavini og nefndi nokkur nöfn á stórum fyrirtækjum. Hann sagði mér þetta með krepptar axlir og samanbitna kjálka. Eftir því sem á leið okkar samtal kom þó í ljós að fyrirtækið sem í upphafi samtals var í miklum blóma reyndist í raun vera með hann einan sem starfsmann og allir hans viðskiptavinir höfðu sagt upp samningum. Hann var því líkt og ég með ekkert að gera að fá sér snúð og með því. En stoltið var svo mikið að hann fékk ekki af sér að segja mér hvernig staðan væri í raun þegar við fyrst tókum tal saman. Mér fannst þetta nokkuð mögnuð upplifun að sjá hvað það er manneskjunni mikils virði að vera eitthvað annað en bara hún sjálf. Að geta tengt sig við einhverja vinnu sem manni finnst vera mikilsverð.
Annar vinkill á þessu og að mörgu leiti af svipuðum toga er mín staða gagnvart fjölskyldunni minni. Ég man vel þegar ég missti vinnuna að ég hugsaði mikið um hvað ég ætti að segja krökkunum mínum. Í þeirra huga var pabbi aðalmaðurinn í flugstöðinni og án hans var óhugsandi að flugsamgöngur gætu gengið eðlilega til og frá landi. Allt í einu væri pabbi síðan bara óþarfur og það var erfiður biti að kyngja. Ég frestaði því aftur og aftur að segja þeim frá hvað væri að gerast þar til að Gyða spurði mig einn daginn: "pabbi þú ferð eiginlega aldrei í vinnuna lengur ". Þá varð þessu ekki frestað lengur. Ég sagði henni að pabbi ætlaði bara að vera í fríi í vetur og vera heima með henni og Bergi. Það fannst henni bara fínt og spurði ekkert meira um þetta.
Núna þegar ég er aftur komin með vinnu í flugstöðinni lét ég það verða mitt fyrsta verk að bjóða henni með í vinnuna mína. Ég var á minni fyrstu næturvakt þar sem ég var einn og óstuddur um daginn og tók Gyðu því með mér í vinnuna. Fékk fyrir hana aðgangsheimild inn á svæðið og svo fórum við saman um alla flugstöðina og skoðuðum og prófuðum allt sem 8 ára stelpu finnst vera spennandi. Að öllu öðru ólöstuðu voru það hlaupahjólin sem unnu hug hennar og hjarta. Ég meina hversu svalt er það að vera í vinnu þar sem maður getur leikið sér á hlaupahjóli allann daginn ? Ekki hægt að toppa það. Það var því ákaflega ánægð og ég held bara stolt lítil stelpa sem fór heim það kvöldið og aftur er pabbi orðin aðal í flugstöðinni. Mig langar síðan að reyna að gera eitthvað svipað fyrir Berg en það krefst aðeins öðruvísi nálgunar.
Annað sem kom mér svolítið á óvart eru félagslegu áhrifin. Vinnustaðurinn er að mörgu leyti eins og lítil félagsmiðstöð. Reyndar svolítið stór félagsmiðstöð í mínu tilviki, en þið skiljið hvað ég meina. Við hittum fólk á hverjum degi og eigum við það samskipti. Æfum okkur í að umgangast aðrar manneskjur og lærum á hverju degi eitthvað nýtt um mannlegt eðli. Þegar þetta dettur út er strax komin smá einangrun og það fer siðan eftir hverjum og einum hvernig gengur að takast á við slíkt. Ég hafði krakkana mína og mína frábæru konu til að tala við. Ég á líka æðislega nágranna sem ég átti við samskipti. Og svo kom eitt nýtt element inn í þetta mix sem er samskiptavefurinn Facebook. Þvílík og önnur eins snilld. Facebook var eins og lítill gluggi út úr þessari einangrun og þar gat maður fylgst með og átt samskipti við fullt af fólki og m.a. frá gamla vinnustaðnum.
En auðvitað kemur Facebook aldrei í staðin fyrir samskipti maður á mann. Og það kom mér aðeins á óvart hvað það hafði mikil áhrif. Man sérstaklega eftir þegar ég fór með Ingu á árshátíð Keilis. Ég hafði ekki farið mikið út á lífið þegar að þessu kom og var þarna að fara að hitta fullt af fólki sem ég hafði ekki hitt áður. Eðlilega vill maður koma vel fyrir á slíkum stundum og ekki vera frúnni mikið til skammar. Allt kvöldið var ég að reyna að slá upp samræðum við fólk en mér fannst ég vera alveg ótrúlega klaufalegur og sífellt að segja eitthvað vitlaust. Ég fann mjög sterkt þetta kvöld hvað ég var að detta úr æfingu við að umgangast fólk.
Ég veit um menn sem misstu vinnuna á svipuðum tíma og hafa ekki í neina fjölskyldu að sækja. Eiga ekki vini sem þeir umgangast reglulega og eiga jafnvel ekki tölvu til að stytta sér stundir. Af þessum mönnum hef ég mjög miklar áhyggjur og vil beina því til allra sem þekkja slík dæmi að vera vakandi yfir þessum einangrunarþætti atvinnuleysis og gera það sem hægt er til að rjúfa þannig vítahring.
Þegar að því kom að ég átti að fara aftur á vinnumarkaðinn kom það mér aðeins á óvart að mig kveið aðeins fyrir þvi að hætta í þeirri rútínu sem á lífið var komin. Þetta var svona þægindahringur sem hafði alveg sína kosti, þurfa ekki að vakna eitthvað extra snemma og eiga hluta dagsins alveg fyrir sig. Hafði líka áhyggjur af krökkunum mínum sem höfðu í vetur notið þess öryggis sem fylgir því að hafa alltaf einhvern heima. Það er örugglega bein fylgni á milli þess hversu lengi maður er án atvinnu og hversu erfitt er að fara aftur af stað. Núna heyrir maður af því að það séu einhver láglaunastörf í boði hjá vinnumálastofnun sem erfiðlega gangi að manna. Margir eru ægilega hneykslaðir á því og telja þetta til marks um að það séu bara aumingjar sem nenna ekki að vinna á atvinnuleysisbótum. Eftir mína upplifun þá get ég alveg skilið það fólk sem á erfitt með að fara af stað í einhverja vinnu sem það langar ekkert til að vinna við og gefur því ekkert annað en svipaðan krónufjölda og bæturnar eru. Ég bið fólk um að vera ekki of fljótt að dæma þá sem eru að þiggja atvinnuleysisbætur.
Lykiltatriði í þessu öllu saman er að fá að halda sinni mannlegu reisn. Lífið er svo mikið meira en bara launaseðillinn. Það er svo miklu meira fólgið í því að vera vinnandi maður en bara hvað þú færð í launaumslagið. Við þurfum auðvitað öll að standa skil á okkar skuldbindingum og öll viljum við geta veitt fjölskyldum okkar helstu nauðsynjar og kannski aðeins meira þegar svo ber við. En það er mér ótrúlega mikilvægt geta horft framan í fjölskyldu mína og vini með stolti og finnast ég vera einhvers virði og þá er ég ekki að tala verðmæti sem mæld eru í krónum.
Kv.
Kej
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2009 | 10:14
Kreppa 101
Þann 1 apríl síðastliðinn lauk hjá mér mjög skrítnu ferðalagi. Þetta ferðalag hófst 25 september kl. 10:00 að morgni og lauk eins og áður sagði á sprelldaginn sjálfan 1. apríl kl. 05:30 að morgni. Það sem gerði þetta ferðalag svona frábrugðið hefðbundnum ferðalögum var m.a. að það fór að mestu leiti fram í rússíbana og hossið tók 6 mánuði . Á einhvern undarlega hátt var það svolítið viðeigandi að þessu ferðalagi skyldi hafa lokið á þessum degi, vantaði bara að einhver hefði slegið hressilega á bakið á mér og sagt: djóoooook, 1.apríl.
Ef einhver skyldi ekki núþegar vera búin að ráða í þessa eitruðu myndlíkingu hjá mér þá er ég semsagt að tala um það þegar ég varð atvinnulaus á haustmánuðum 2008 korteri fyrir hrun.
Það er undarleg upplifun að vera sagt upp störfum. Ég þóttist vita að einhverra breytinga væri að vænta á þessum tíma og kreppudraugurinn hafði þá þegar litið við í flestum deildum fyrirtækisins með miður skemmtilegum afleiðingum. Ég hafði því búið mig undir breytingar og jafnvel einhverri skerðingu á starfshlutfalli og launum. En í mínum villtustu martröðum átti ég ekki von á því að standa uppi atvinnulaus og hafa ekki í neina vinnu að sækja. Það varð samt raunin og þar með hófst þessi undarlega rússíbanareið sem lagði undir sig hjá okkur veturinn 2008/09.
Á þessum tíma var verið að segja upp fólki mjög víða i þjóðfélaginu og margir urðu líka að taka á sig launaskerðingar. Menn tóku þessum áföllum með misjöfnum hætti, margir áttu mjög erfitt með að sætta sig við það sem var að gerast og skyldi kannski engan undra. Ég sá menn sem allt að því buguðust og ég sá líka menn sem urðu alveg ofboðslega reiðir og bitrir. Viðbrögð hvers og eins við þessum áföllum höfðu síðan smitandi áhrif á þeirra nánasta umhverfi. Makar og börn sýktust af biturleika og vonbrigðum sem síðan dreifði sér yfir í nám og vinnu hjá viðkomandi. Þetta sá ég gerast í kring um mig og ég vissi alveg að hætta væri á að gerðist hjá mér.
Þegar ég var í bílnum mínum á leiðinni heim af þessum örlagaríka fundi var bara ein hugsun sem komst að. Ég skyldi ekki leyfa þessum neikvæðu fréttum að draga fjölskylduna mína niður í fen reiði og vonleysis. Inga var nýlega byrjuð í háskólanámi sem hún var búin að stefna að í mörg ár og ég vissi alveg að ef ég héldi ekki rétt á spilunum þá væri mikil hætta á að hún flosnaði upp úr því námi. Hún á það til að láta þá bræður kvíða og áhyggjur taka völdin af þeim systkinum skynsemi og raunsæi og þá er voðin vís. Það var því algert forgangsatriði að fara í gegn um þetta tímabil, hversu lengi sem það stæði, án þessa að hún missti tökin á þeirri tilveru sem hún var að reyna að skapa sér.
Um það bil viku eftir að mér hafði verið sagt upp hrundi síðan bankakerfi landsins og allt í einu var vont ástand farið að líta mun verr út og fór aðeins versnandi. Allur fréttaflutningur á þessum tíma dró mjög úr okkur kjark og bjartsýni og svo fór að við ákváðum að hætta að leyfa þessu neikvæða fréttaflutningi dag eftir dag að koma með alla þessa neikvæðu strauma inn á heimili okkar. Að sjálfsögðu fylgdumst við með hvað var að gerast en hættum að láta fréttirnar dynja á okkur daginn út og inn. Við tókum þann pól í hæðina að nú væru einhverjir hlutir að gerast sem við áttum enga sök á og gætum lítil áhrif haft á.
Til að bæta gráu ofan á svart vorum við búin að ákveða að fara til Minneapolis einmitt í vikunni sem allt hrundi og krónan var í frjálsu falli. Við byrjuðum á að fresta þeirri ferð um viku en ákváðum síðan að láta bara vaða og stinga af úr þessu rugli öllu saman og reyna að ná einhverri skynsemissýn á það sem var að gerast hjá okkur. Sú ákvörðun að kúpla okkur út úr ruglinu hér heima á þessum tímapunkti reyndist algerlega frábær. Strax í flugvélinni á leiðinni út fann ég hversu mikið við þurftum á þessu að halda. Í Minneapolis náðum við að stilla upp smá hernaðaráætlun fyrir það sem framundan var og tala okkur saman um þessa undarlegu stöðu sem upp var komin.
Næstu vikur voru síðan rosalega upp og niður, út og suður og mikið tilfinningarúss . Það var skrítið að finna hvernig smá saman maður aftengdist þessu vaktakerfislífi og allt í einu var ég ekki viss hvaða dagur var í dag og hvort það væri helgi eða virkur dagur. Ég er búin að vera svo lengi í vaktavinnu að sú breyting var mjög áþreifanleg. En einhvernvegin vandist það og lífið hélt áfram þrátt fyrir allar hrakspár um annað í flestum fjölmiðlum landsins.
Eitt af því sem ég kveið fyrir var desembermánuður og allt það sem honum fylgdi. Þessi mánuður sem vanalega kemur með svo margt skemmtilegt með sér. Ég var hreinlega ekki viss um hvað desember 2008 bæri í skauti sér miðað við alla þá bölsýni og neikvæðni sem var í loftinu á þessum tíma. Reyndin varð þó sú að árið 2008 upplifði ég einhver bestu jól og áramót með börnunum mínum frá því að þau fæddust. Ég hafði aldrei áður átt svona mikinn tíma með þeim og getað tekið svona mikinn þátt í aðventunni og öllum undirbúningnum. Áramótin með rakettukallinum mínum voru líka alveg geggjuð í orðsins fyllstu merkingu .
Það urðu líka breytingar hjá Ingu á þessu tímabili þar sem enga vinnu var að fá og allt í eymd og volæði. Hún bætti við sig kennslu hjá miðstöð símentunnar og var síðan ráðin í fulla vinnu sem umsjónarmaður fjarnema í háskólabrúnni hjá Keili. Í framhaldinu hætti hún í sínu gamla starfi sem kennari við Holtaskóla Þannig að núna var konan mín sem hafði minnkað við sig vinnu til þessa að geta sinnt háskólanámi í stærðfræði, komin í eina og hálfa vinnu ásamt því að vera í námi. Og allt í einu var bara assgoti gott að vera með svona heimavinnandi húsfaðir til að sjá um heimili og börn á meðan að konan sá um að draga björg í bú.
Eftir áramótin var mér farið að finnast þetta alveg ágætt. Að vera heima að sjá um heimilið, taka á móti Gyðu þegar hún kom heim úr skólanum. Hjálpa henni með heimanámið og koma henni svo í fimleika eða út í hesthús. Þvo þvott, taka til og þrífa, fara í búð, elda eitthvað fyrir kvöldmatinn osfrv. Við fórum í ótal sleðaferðir, pabbinn bakaði bananabrauð í nesti og tókum gjarnan strákana úr næsta húsi með. Á þessum tíma var ég líka komin með vilyrði fyrir vinnu með vorinu og var því laus við mestu óvissuna sem var það sem einna erfiðast var að eiga við. Stundum var ég ekki viss um að mér mætti finnast þetta vera fínt því þetta stríðir gegn flestum normum sem segja að karlmenn eigi að vera útivinnandi og eigi að finnast húsverk leiðinleg. Það komu líka dagar þar sem mér fannst tilbreytingarleysið svolítið erfitt og þá var ekkert annað að gera en að hringja í vinina og skipuleggja smá hitting. Það dugði fínt til að hlaða aðeins batteríin.
Ég passaði mig líka á því að halda rútínu allan veturinn, vakna kl. 07:00 og fara að sofa fyrir miðnætti. Notaði svo morgnana í að labba með Goða eða fara í ræktina. Ég passaði mig líka á að forðast flest það sem kallaði fram neikvæðni eins og áfengi og óhoflegt sjónvarps eða tölvuhangs. Öll þessi smáatriði gerðu það að verkum að geðheilsan er að koma nokkurn veginn óbrotin undan vetri. Auðvitað tókst þetta ekkert alltaf og suma daga var maður bara hundfúll og hundleiðinlegur og nennti ekki neinu. Var jafnvel ógeðslega fúll út í allt og alla og fannst maður eiga rosalega bágt. En slíkir dagar voru í miklum minnihluta og stóðu stutt yfir þegar þeir komu.
Þegar nær dró þeim degi sem ég átti að fara aftur í vinnu fór ég að finna fyrir smá kvíða fyrir því að brjóta þessa rútínu sem við vorum komin með á fjölskyldulífið okkar. Auðvitað var ómögulegt að vera á atvinnuleysisbótum en fjölskyldulega og heimilislega var þetta bara ágætt. Mér fannst ég að mörgu leyti vera að yfirgefa börnin mín með því að fara á vinnumarkaðinn aftur nú þegar að Inga var komin í meiri vinnu og í námi. Ég var líka með blendnar tilfinningar gagnvart því að fara aftur að vinna við þetta starf sem ég hafði sinnt einhverjum 8 árum áður. Það var á þeim tíma mjög erfitt og vanþakklátt starf og ég var svo sem ekkert að deyja úr spenningi að hverfa aftur til þess tíma. En svo fór að þann 1. apríl mætti ég aftur í vinnu hjá IGS.
Það var mjög undarlegt að labba aftur inn í flugstöðina og hitta allt það fólk sem þar vinnur og átta sig á því að ég væri komin aftur inn á þennan stóra vinnustað. Satt best að segja var ég um tíma ekkert viss hver mín staða var gagnvart þessum vinnustað og hafði alveg hugleitt það hvort að þessu tímabili í mínu lífi væri kannski bara lokið. Fyrsti dagurinn í vinnunni eftir þetta 6 mánaða frí tók alveg ótrúlega mikla orku frá mér en samt gerði ég eiginlega ekkert annað en að flækjast um stöðina og fylgjast með. Þegar ég kom heim um kvöldið var ég svo gjörsamlega þurrausinn allri orku og var farinn að hvæsa á allt og alla um kl. hálf níu. Það fór gjörsamlega allt í taugarnar á mér og ég var tilbúin að rífast yfir öllu . Þá skipaði konan mín mér inn í rúm og sem betur fer hlýddi ég því og var svo sofnaður nokkru áður en höfuðið hitti koddann.
Þannig að núna er að hefjast nýtt tímabil í lífi litlu fjölskyldunnar okkar. Tímabil þar sem við Inga verðum útivinnandi í allt sumar og eigum í fyrsta sinn í nokkuð langan tíma ekki rétt á neinu sumarfríi. Ég er líka lausráðin í þeirri vinnu sem ég er í núna og veit svo sem ekki hvað tekur við að hausti. Við höfum þurft að undirbúa okkur og setja upp áætlum um hvernig við ætlum að tækla þetta tímabil sem framundan er á sama hátt og við töluðum okkur saman um hvernig við ætluðum að mæta tímabili atvinnuleysis í vetur. Staðan í þjóðfélaginu er einfaldlega þannig að hver og einn þarf að synda sitt björgunarsund í gegn um þennan ólgusjó sem þjóðarskútunni var sökkt í. Við erum ekkert undanskilin þar og gerum okkur alveg grein fyrir því. Við ætlum okkur í gegn um þetta tímabil með reisn og bara leyfa hverjum degi að nægja sína þjáningu.
Kv.
Kej.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar