Saumur, ormur og sprauta !

Fór með hundinn í saumatöku og ormahreinsun og það gekk bara fínt.  Dýralæknirinn sá í bókinni hans að hann átti eftir að fara í bólusetningu þannig að við tókum það bara í leiðinni. Kallinn varð pínu slappur Sick eftir sprautuna og kastaði nokkrum sinnum upp. En hann hresstist þegar líða tók á kvöldið. Og þá fer að styttast í að við hefjum þjálfunina hans. 

Annars erum við alltaf að sjá betur og betur hvað þessi hundur er mikið gæðablóð. Í morgun laumaði hann sér t.d. upp í til mín og hjúfraði sig í hálsakotið mitt.  Eitthvað alveg spes að vakna með hund kúrandi uppi í rúmi hjá sér. Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu, heyrðu... Goði var búinn með allar bólusetningar

Það eru allar upplýsingar um hann hjá dýralæknamiðstöð Grafarvogs (held ég að hún heiti). Ég var ekki með bókina þegar ég fór síðast með hann

Með bestu kveðju

Jóhann Þór (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 22:31

2 identicon

 Leiðrétting!!!

Dýralæknamiðstöðin Grafarholti - dyrin.is - Sími : 5444544

 Þetta er staðurinn...

Kv. 

Jóhann Þór (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 22:39

3 identicon

Hæ krúsí frændi minn .  Æi greyið - er hann þá búinn að fá þessa bólusetningu 2x.  Ætli það eigi að breyta einhverju - varla getur það skaðað?  Já mér fannst þetta líka skrýtið þegar Krissi kom heim.  Hugsa oft til þín kroppur og vona að allt gangi vel hjá þér.  Hilsen til Kjartans ef hann man eftir mér

Inga Sveina (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir
Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Þetta blogg er dagbók 4 manna fjölskyldu í Reykjanesbæ.

Upphaflega var hugmyndin með þessu bloggi að leyfa áhugasömum að fylgjast með framvindu þjálfunar á border collie hundi sem við fengum um árámótin 2008. Markmið þjálfunar var m.a. að kenna hundinum honum Goða að passa upp á hann Berg sem er einhverfur 13 ára drengur. Við vildum líka geta horft til baka og skoðað þetta aðeins í baksýnisspeglinum. 

Bloggið hefur síðan þróast aðeins  og hinar og þessar hugleiðingar hafa dottið hingað inn og ekkert endilega tengdar honum Goða sem bloggið er þó nefnt í höfuðið á. 

Allir þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með okkur og jafnvel koma með innlegg eru velkomnir. Fjölskyldumeðlimir eru:

Kristinn Edgar Jóhannsson

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Bergur Edgar Kristinsson

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Goði Freyr Gyðuson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 21204

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Teppi
  • Hetta
  • ...imag0101
  • ...090228_2_31
  • ...skur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband