Brotinn kragi og laus hundur.

Jæja kallinn hafði það af að mölbrjóta kragann sinn fína og því þurfti að hringja út dýralækni á þriðjudagskvöldið og fá hjá honum nýjan kraga. Hann kíkti í leiðinni á sauminn og sagði allt vera á góðri leið.  Í gær stakk gæjinn síðan af.  Hann hafði verið úti í garði með Gyðu að leika sér aðeins þegar hann sér lausan hund hlaupa hjá.  Okkar maður náttúrulega lang spenntastur að fara að leika við þennan hund og þurfti ég að hlaupa ansi langt á eftir þessum tveim villingum áður en ég fékk Goða til þess að koma til mín.  Ég hafði nokkrar áhyggjur vegna þess að hann var enn með sauminn í sér og mátti helst ekki vera að fara neitt í hann og einnig að ég myndi hreinlega týna honum.  En allt fór þetta þó vel að lokum. Joyful

Kv.

Kej 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komið sæl og til hamingju með hann Goða ykkar,rosalega flottur, ótrúlega gaman að sjá þessa síðu hjá ykkur meðal annars þar sem ég á mömmu hans Goða hana Aþenu. Jóhann sendi mér linkinn svo ég varð að kíkja . Ef ykkur langar í myndir af honum sem pínu hvolpi þá get ég sent ykkur.

kveðja Heiða Mjöll

Heiða Mjöll Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 00:33

2 identicon

Ha, ha, fjörið byrjað. Sé þig alveg fyrir mér þjótandi um Þverholtið á eftir Goða - góð líkamsrækt!
Kær kv. HGG

Hulda (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 12:44

3 Smámynd: Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Sæl Heiða og takk fyrir innlitið. Við værum mjög svo til í að fá myndir af honum littlum. Eins væri gaman að sjá mynd af mömmu hans.

Hulda, ég náði honum loks niðri á háaleiti vel búin á því. Ekki alveg í bestu hlaupaæfingunni þessa dagana.

Kv. Kej 

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, 1.2.2008 kl. 13:20

4 Smámynd: Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Og póstfangið okkar by the way er kristinn@heimsnet.is 

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, 1.2.2008 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir
Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Þetta blogg er dagbók 4 manna fjölskyldu í Reykjanesbæ.

Upphaflega var hugmyndin með þessu bloggi að leyfa áhugasömum að fylgjast með framvindu þjálfunar á border collie hundi sem við fengum um árámótin 2008. Markmið þjálfunar var m.a. að kenna hundinum honum Goða að passa upp á hann Berg sem er einhverfur 13 ára drengur. Við vildum líka geta horft til baka og skoðað þetta aðeins í baksýnisspeglinum. 

Bloggið hefur síðan þróast aðeins  og hinar og þessar hugleiðingar hafa dottið hingað inn og ekkert endilega tengdar honum Goða sem bloggið er þó nefnt í höfuðið á. 

Allir þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með okkur og jafnvel koma með innlegg eru velkomnir. Fjölskyldumeðlimir eru:

Kristinn Edgar Jóhannsson

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Bergur Edgar Kristinsson

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Goði Freyr Gyðuson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 21236

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Teppi
  • Hetta
  • ...imag0101
  • ...090228_2_31
  • ...skur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband