19.7.2008 | 21:19
Berglaus vika.
Bergur fór í sumarbúðir og Þverholtið hefur því verið Berglaust í eina viku. Afar, afar sérstakt ástand fyrir þá sem eru því ekki vanir verð ég að segja. Engin kvöldfótbolti, engar vangaveltur um eðli flugelda og engar vettvangsrannsóknir á skordýrum. Auk þess frí í hundaþjálfun og Goði greyið ráfar um hálf stefnulaus og veltir fyrir sér tilgangi lífsins.
Húsráðendur fóru því á fullt þessa vikuna í að mála óðalið að utan og gengur þokkalega þó hægt fari. Byrjuðum á þakinu og þegar við vorum búin að grunna og rétt hálfnuð með að mála fyrri umferð sjáum við hvar skutbíll rennur upp að húsinu beint á móti og út stíga 2 málarar vopnaðir málningarsprautu. Þeir voru síðan hálfan dag að gluða yfir þakið á meðan við hjónin djöfluðumst með málningarkústana og gott ef helvítinn glottu ekki til okkar þegar þeir príluðu niður af þakinu, við enn að tuddast með kústana á fyrri umferð.
Húsfrúin fór síðan einn daginn í málningarbúðina að sækja meiri málningu og beið eftir afgreiðslu í sínum málningarfötum með öllum sínum málningarslettum. Á undan henni var ónefnt par í sínu fínasta pússi og voru þau að velja sér lit utan á húsið sitt. Þegar þau höfðu komið sér niður á lit sögðu þau síðan við afgreiðslumanninn " Já og málarinn kemur svo í fyrramálið og sækir þennan lit". Það sauð náttúrulega á minni og eflaust hefur litlu munað að hún missti eitthvað óheppilegt út úr sér (sem hún er soldið gjörn á að gera þessi elska).
En maður getur ekki annað gert en að fara með gömlu möntruna um að maður sé á svo góðu tímakaupi og bla bla bla.. Annars fallast manni bara hendur í svona framkvæmdum.
Kv. Kej.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.