27.7.2008 | 23:18
Haltur hundur,harðsperrur og hetjudáðir.
Aumingja Goði er orðin haltur á hægri framlöpp. Við tókum eftir þessu einn daginn og vitum enga skýringu á þessu. Þegar hann stendur upp úr liggjandi stöðu haltrar hann í smá stund en síðan dregur úr því og á endanum fer það. En um leið og hann leggst aftur stendur hann upp jafn haltur og áður. Fórum á endanum með hann til dýralæknis sem skoðaði hann og sagði að líklega væri hann tognaður á löppinni. Fékk bólgueyðandi töflur og fyrirskipað að taka því rólega í fimm daga.
Málaraverktakarnir (Krissi og Inga) vinna hörðum höndum að því að mála slotið á þverholti 7 og þó að gangi kannski pínu hægt þá er þetta allt að koma. Eina sem við gleymdum að gera ráð fyrir var að hvorugt okkar er 17 ára ennþá og harðsperrurnar eftir að standa í stiga og mála upp fyrir sig eru eitthvað sem ég myndi ekki óska mínum verstu óvinum. En á endanum verður þetta búið og þá man engin hvort þetta tók eina viku eða 2 mánuði.
Þegar við hjónin vorum í London í maí mánuði tókum við þá ákvörðun að ná okkur í hlaupaprógramm og stefna markvisst að því að taka þátt í reykjavíkurmaraþoninu í ár. Nú þegar stutt er í fyrrnefnt maraþon hefur sá sem þetta skrifar ekki hlaupið í annað en spik á meðan að betri helmingurinn hljóp 8km í gær og hefur núþegar skráð sig í að hlaupa 10km í reykjavíkurmaraþoninu. Ég verð að viðurkenna að mér finnst hún vera þvílík hetja og ég vildi óska þess að ég væri jafn duglegur og hún.
Lykilinn að þessu hjá henni er að hún fór hægt af stað og bætti við sig jafnt og þétt. Ég er aftur á móti þessi gæi sem byrjar á að hlaupa 10km og er síðan rúmfastur í viku með harðsperrur dauðans.
Kv. Kej
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.