24.8.2008 | 11:10
Hlaupi lokið - áheit ekki endurgreidd :)
Takk takk allir þeir sem hétu á mig í 10 km hlaupinu. Með ykkar aðstoð náði ég að safna 64.000 krónum sem renna til Ragnarssels. Þetta var meiriháttar. Við Ása hlupum þetta saman alla leið og þvílík upplifun. Það var alveg magnað að sjá alla troðfullar götur fyrir framan mann - allskonar fólk og allir að hlaupa 10 km. Gæsahúð niður í tær. Það sem var líka alveg magnað var allt fólkið sem stóð hér og þar við hlaupaleiðina og hvatti okkur áfram - maður fékk orku frá þessu fólki. Í einni götu stóðu þónokkuð margir íbúar á tröppunum með machintosh dósir og sleifar og barði í - aftur gæsahúð . Mér fannst samt sætast að sjá lítinn gutta sem hélt á stóru plakati og á því stóð "Áfram mamma" Eitthvað er álagið á fæturna farið að segja til sín en við Ása kláruðum hlaupið saman fyrir Ragnarssel - og ótrúlegt hvað það hélt manni hlaupandi allan tímann. Ég var alltaf að hugsa að ég mætti ekki gefast upp því annars fengju þau ekki peninginn - og fyrir vikið varð þetta miklu léttara hlaup en ég átti von á. Tíminn var svona lala - 1 klst og 20 mín en ég hef tækifæri á að bæta tímann minn í Suðurnesjamaraþoninu sem verður á ljósanótt þann 6. sept (eftir 2 vikur).
Ég er nokkuð spennt að fá að vita hvað safnaðist í það heila því ég held að það hafi verið 10 hlauparar að hlaupa fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum - Frábært.
Enn og aftur takk fyrir stuðninginn - þið voruð frábær.
Inga Sveina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.