Jólaball með bæjó.

Þá eru 17 dagar í opnun á flugeldasölum Sideways og hér eru menn ákveðnir í að standa sig og láta ekki hanka sig á þvi að vera með einhverja óþekkt sem væri ekki jólasveinum að skapi og gæti jafnvel dregið úr líkum á þvi að maður fái nú eitthvað í skóinn sinn. 

p1010091.jpgBergur fór á jólaball í gær í boði bæjarstjórans og voru send spariföt með honum á Ragnarssel ásamt nýjum Nike körfuboltaskóm sem hann hafði ekki  farið í áður.  Við vorum búin að máta dressið daginn áður og prófa skóna en Bergur ætlaði sko ekkert að fara neitt meira í þessa larfa og ekkert að púkka upp á þessa ömurlegu skó sem voru með reimum og allt. Það var því mjög svo undrandi pabbi sem sá unglinginn sinn alveg hreint glerfínan í hvítri skyrtu og tíglapeysu með buxurnar utanyfir skóna sína svona bara eins og venjulegur unglingur. Ásta Rós fær umsvifalaust 10 rokkstig fyrir að koma honum í dressið. Grinp1010089.jpg

Bergi var mikið í mun að sýna jólasveinum sem mættu í partýið rakettumöppuna sína og jafnvel benda þeim á hverskonar fjölskyldupakka hann vildi fá frá jólasveininum undir jólatréð á aðfangadag. Að endingu þurfti að toga kappan  í burt frá sveinka svo að aðrir kæmust nú líka að. Alla leið út  á bílastæði var Bergur mjög meðvitaður um að sýna ekkert annað en sparihegðun ef ske kynni að jólasveinninn sæi nú eitthvað til hans.  Bað svo pabba sinn að segja jólasveinum að Bergur væri "stilltur og prúður piltur". Halo

Hann og systir hans fengu svo sitthvorn nammipokann frá Kertasníki og á meðan að systir hans gæddi sér á innihaldinu þegar heim var komið náði Bergur í skóna sína (ekkert nóg að hafa bara einn) og setti sitt nammi í  annan skóinn og síðan báða skóna út í glugga.  Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.  Í kvöld er víst von á honum Stekkjastaur og þá er nú eins gott að vera með allt á hreinu, skóna tilbúna, ekkert að vera óþekkur og fara snemma að sofa. Þá er aldrei að vita nema að eitthvað verði í skónum þegar maður vaknar.


Úr rakettudagbókinni ofl.

20 dagar þar til flugeldasölurnar opna og okkar manni farið að hlakka mikið til.  Hann ákvað í gær að mappan sem ég útbjó fyrir hann með öllum rakettumyndunum væri alveg ómöguleg og heimtaði að fá "harða möppu" og að endingu mátti mamma hans láta sig hafa það að losa eina skólamöppuna sína svo að flugeldafræðingurinn fengi nú hörðu möppuna sína. Whistling

Hann situr núna í gömlu borðtölvunni okkar og flettir gömlum myndum frá gamlárskvöldi 2003 í bland við myndir sem við sóttum af netinu af flugeldasölum héðan og þaðan.  Þess á milli flettir hann möppunni sinni og spyr foreldra sína ýmissa rakettutengdra spurninga, eða varpar fram flugeldatengdum fullyrðingum eins og t.d. :  "Fólk springur ekki, bara rakettur !" eða "Fyrst koma jólin og svo koma raketturnar !" og ekki má gleyma "Bráðum koma raketturnar !".  

Annars er jólastemmingin aldeilis farin að blómstra hjá okkur á Þverholtinu og um helgina voru bakaðar smákökur, horft á Christmas Vacation (skylduáhorf) og klárað að kaupa síðustu jólagjafirnar. Bergur og Gyða höfðu ótrúlega gaman af að horfa á þessa frábæru mynd sem Christmas Vacation er og Bergur hló alveg eins og asni að henni þegar eitthvað fór úrskeiðis hjá aumingja Griswold. Tounge

Síðan styttist í hina árlegu jólasýningu hjá Fimleikafélaginu og ef maður er ekki komin í jólaskap fyrir hana þá fer maður pottþétt í jólaskapi heim af þeirri frábæru sýningu.  Gyða er búin að vera rosalega duglega að mæta á æfingar og æfa dansinn þeirra heima.  Hún kann dansinn alveg utanað en svo er spurning hvort að sýningarstressið hafi einhver áhrif á það hjá henni. 

Hún kom heim af æfingu um daginn og fræddi pabba sinn á því að í dag hefði hún fengið að tengja.  Hún var svo rosalega ánægð með þetta og ég var ekki alveg að átta mig á því hvað væri svona merkilegt við að fá að tengja.  Hélt þetta væri eitthvað svona rafmagns, stinga einhverju í samband eða eitthvað.  En nei, það var ekki það heldur fékk hún að fara í arabastökk og beint í flikk á eftir og var mín kona heldur betur ánægð með það.  Fyrir þá sem ekki vita þá er arabastökk-flikk eitt það allra flottasta, alla veganna í mínum huga.  Og núna er litla 7 ára skottið mitt byrjað að æfa það. Ómægod.  Crying

Og aldrei þessu vant erum við búin að ganga frá öllu jólagjafastússi.  Held við höfum aldrei verið svona snemma í því áður.  Við ætlum að reyna að leyfa aðventunni að líða í rólegheitum og leggja áherslu á samveru og kósýheit.  Ég er búin að viða að mér haug af jólabíómyndum og við ætlum að renna saman í gegnum þær og skemmta okkur saman.

Einkunnarorð þessara jóla verða gleði, rólegheit og fjölskyldusamvera.  Joyful

Kv.

Kej.


Af rakettum og mönnum.

Ef einhver er ekki með það á hreinu þá eru núna 27 dagar þar til flugeldasölur opna. Ykkur finnst það kannski undarlegt að vera að varpa þessu fram þegar jólastemmingin er ekki einu sinni almennilega skollinn á en trúið mér að það er góð og gild ástæða fyrir þessu öllu saman. 

Í því gjaldeyris fárviðri sem geisað hefur að undanförnu hef ég ólíkt mörgum verið algerlega laus við áhyggjur af Cocoa Puffs og Cadburys skorti í hillum verslana.  Það sem haldið hefur fyrir mér vöku er sú spurning hvort að hömlur verði á innflutningi á flugeldum fyrir áramótin.  En fyrir skömmu fékk ég fullvissu fyrir því að gámarnir væru komnir til landsins og ekkert sem stæði í vegi fyrir hefðbundinni flugeldasölu í ár.  W00t

Þeir sem þekkja til á Þverholtinu vita sem er að ástæða þessara vangaveltna er hin 13 ára gamli flugeldafræðingur sem hann sonur minn er.  Hann byrjaði að spá í gamlárskvöldi að morgni 1. janúar 2008 og hafa þær pælingar stigmagnast eftir því sem dagarnir líða og nær dregur.  Eftir því sem jólaljósum fjölgar í bæjarfélaginu hefur okkar maður eflst í þeirri trú að nú styttist í stóra daginn og er hann óþreytandi við að ræða þetta áhugamál sitt við alla sem vilja.  tro_ni2.jpg

Við erum yfirleitt mættir að kvöldi 27 des fyrir utan flugeldasölurnar og fylgjumst með í leyni þegar verið er að bera kassana úr flutningabílunum og inn í verslanirnar.  Síðan erum við mættir á slaginu þegar opnað er daginn eftir.  Bergur er búin að vera að safna peningum í sérstaka rakettubuddu allt árið og er ákveðin í að kaupa "fullt af drasli " eins og hann segir sjálfur.  tro_ni.jpg

Um daginn tók ég mig til og prentaði út nokkrar myndir sem teknar voru af flugeldasölum og líka af öllum fjölskyldupökkunum frá björgunarsveitunum. Honum hafði áður áskotnast þessi líka fína mynd af rakettum og öðru dóti og þegar hún var um það bil að detta í sundur sá ég að eitthvað varð að gera.  Við útbjuggum því smá möppu með c.a. 5 blaðsíðum og settum allt í plastvasa.  Þessi mappa er núna miðpunktur alheimsins í huga þessa unga manns og liggur á koddanum við hliðina á honum þegar hann sefur.  

Framundan eru spennandi dagar sem stigmagnast og ná hámarki á gamlárskvöldi.  Og það er eins gott að pabbi hans Bergs er pínu leynirakettukall líka.  Tounge

 

Kv.

Kej. 

 


Tímamót

Ævi hvers manns er alsett tímamótum.  Hver einasti dagur felur í sér krossgötur og tímamót sem eru misjafnlega stór.  Stundum er spurningin hvaða leið við ætlum í vinnuna eða hvað við ætlum að hafa í matinn .  Við erum alla daga að velja og ákveða hvaða leið við ætlum að fara.  Skiljanlega veljum við oftast leiðina sem er kunnuglegri og forðumst göturnar sem eru myrkari og virka óþægilegri.   

En svo koma stóru tímamótin eins og að eignast barn, ganga í hjónaband nú eða að skilja, eiga stórafmæli, að missa ástvin og að byrja í nýrri vinnu. Allt eru þetta tímamót sem marka okkur og jafnvel breyta.  

Þann 25 september síðastliðin urðu hjá mér tímamót sem falla í þennan síðarnefnda flokk.  Þá var starfið mitt sem ég hef unnið við síðastliðin þrjú ár, lagt niður og mér tjáð að ég þyrfti ekki að vinna minn uppsagnarfrest.  Ég hef unnið hjá fyrirtækinu við hin ýmsu störf í einni eða annarri mynd síðan árið 1985 og því óneitanlega skrítið að vera ekki lengur hluti af þessari fjölskyldu.  Þessi dagur verður mér líklegast alltaf í fersku minni og verður flokkaður með öðrum hamfaraminningum eins og þegar Discovery geimferjan sprakk og 11 september.  

Að takast á við vinnumissi er ekki auðvelt.  Ekki síst þegar um er að ræða vinnu sem var skemmtileg og oft á tíðum gefandi og gaf einnig ágætlega af sér. Þegar við bætast síðan þær hörmungar sem gengu yfir landið um 2 vikum síðar og ekki sér fyrir endan á,  þá er þetta orðið nokkuð stór pakki.  En þetta eru enn einar krossgöturnar í lífinu og í raun bara spurning um hvaða leið þú ætlar að fara.  Ætlar þú að taka þessa breiðu og augljósu leið sem kallast gæti svekkelsis og þunglyndis breiðgata eða muntu velja eina af þessum þröngu og torförnu götum sem kalla á jákvæðni á stundu þar sem fátt jákvætt er að finna.  

Einhverja hluta vegna á heimleið af uppsagnarfundinum glumdi í höfðinu á mér textinn við lagið So What með Pink: "So what, I´m still a rockstar, I got my rock moves".  Og frá fyrstu stundu var ég ákveðin að láta þetta ekki buga mig.  Ég hef reynt að sjá aðeins það jákvæða við þessar aðstæður sem ég er núna komin í og átti engan þátt í að skapa.  Hvað get ég gert gott úr þessu öllu saman.  Það er mjög auðvelt að detta í fýlupakkann og velta sér upp úr því hvað allt sé glatað og hvað ég eigi bágt.  En það skilar mér og minni fjölskyldu akkúrat engu nema leiðindum að gera það og því kýs ég að sleppa því. 

Það er samt ekki alltaf eins auðvelt og að segja það.  Að kjósa að sleppa því að láta þetta hörmungarástand hafa áhrif á sig.  Hljómar svakalega flott en er í raun alveg brjáluð vinna.  Suma daga vaknar maður og hlær að þessu bulli og skellir sér svo í ræktina.  En aðra daga vill maður helst sitja og stara fram fyrir sig og ekki tala við neinn.  Ég hef reynt eins og hægt er að halda einhverri rútínu, vakna alltaf með krökkunum kl. 0700 og kem þeim í skólann.  Fer svo í ræktina (á góðu geðdögunum) og reyni að hafa eitthvað fyrir stafni sem kallar fram jákvæða strauma.  Ég reyni af fremsta megni að sækja í athafnir sem kalla fram jákvæðni og forðast það sem kallar fram neikvæðar tilfinningar.   En stundum lýsa þó hin fleygu orð sem ég las á einu kröfuspjaldi á Austurvelli um daginn hugarástandinu best eða: "Djöfulsins fokking fokk"

Við hjónin vorum búin að stilla upp ferð til Minneapolis um miðjan Október áður en allt þetta dundi yfir.  Við veltum því mikið fyrir okkur hvort við ættum að hætta við þegar dollarinn tók að hækka upp úr öllu valdi. Við ákváðum þó að láta bara vaða og fórum út með dollarann í 115kr. Og þvílíkt sem var gott að komast aðeins í burt úr allri neikvæðninni hér á landi og sjá eitthvað annað í fréttum en hörmungar og eymd. Í MSP gátum við talað okkur saman um hvernig við ætlum að takast á við komandi tíma sama hvað dúkkar upp.  Við keyptum okkur líka nýja Asics hlaupaskó og það er mjög stór hluti af meðferðinni gegn allri neikvæðninni að eiga góða hlaupaskó skal ég segja ykkur.  

Reyndar var ég búin að ráða mig í aðra vinnu uþb 2 vikum síðar þegar ég áttaði mig á því að um leið og ég færi að vinna annarstaðar myndi fyrri vinnuveitandi hætta að borga mér uppsagnarfrestinn.  Ég hefði tapað einhverjum peningum á því og ákvað að draga mig út úr þeirri vinnu.  Óneitanlega hugsar maður stundum hvort að sú ákvörðun hafi verið röng í ljósi þess hve kreppann virðist dýpka með hverjum deginum sem líður. En við sjáum hvað setur með það. 

Ég er því núna að bíða af mér minn 4 mánaða uppsagnarfrest að viðbættu lokauppgjöri á fríum og öðru og er því góður launalega séð fram í feb-mar.  Ég ætla að vera heimavinnandi húsfaðir fram að þeim tíma og er í raun alveg nóg að gera í þeirri vinnu.  Heimilið okkar er ágætlega erilsamt og nóg að þvo og þrífa, hjálpa til með heimanám, versla í matinn og elda, baka og viðra hundinn.  Einnig sé ég fram á að geta loks sinnt ræktinni og skokkinu betur og er að komast í ágætis form. Ég er alveg handviss um að ég fæ eitthvað að gera þegar þar að kemur og bara spurning um hvað það verður.  Auðvitað eru mjög margir óvissuþættir sem erfitt er að spá fyrir um. Ég kýs að velta mér ekki upp úr því sem ég get ekki haft áhrif á og láta hverjum degi nægja sína þjáningu.

Ef allt verður síðan í kaldakoli hér á klakanum á vormánuðum og enga vinnu að hafa sem hægt er að sætta sig við þá förum við við bara eitthvað annað og hefjum nýtt líf í öðru landi.  Ekkert mál. Það er alltaf einhver lausn og einhver leið sem hægt er að fara.

Ég neita að láta þetta bullástand sem ég átti engan þátt í að skapa buga mig og draga mig og mína fjölskyldu niður í neikvæðnina.  Devil  Og hana nú !

 Kv.

Kej.


FÍFA 2008

Ég fékk vinsamlega ábendingu um að í þessu bloggi okkar hefði bara alls ekkert verið minnst á nýjasta ferfætta  fjölskyldumeðliminn. Ábendingin átti svo sannarlega rétt á sér þar sem hún er ekki aðeins rétt heldur líka sönn. Það eru auðvitað stórtíðindi á hverju heimili þegar við bætist aukameðlimur upp á u.þ.b. hálft tonn. En til að gera langa sögu stutta, þá fjárfestum við í einu stykki af hrossi um daginn. 

Eins og áður hefur verið komið inn á í þessu bloggi þá hefur þessi fjölskylda einhvernvegin alltaf verið með annan fótinn úti í hesthúsi.  Systkini hennar Ingu eru svo mikið á kafi í þessu sporti að rétt standa hælarnir upp úr. Hún sjálf hefur líka aðeins dýft tánni úti (svona upp að hné eða svo) og að auki höfum við verið með Berg í þroskaþjálfun á hestbaki frá því hann var smápatti. Undirritaður aftur á móti hefur reynt hvað hann getur til þess að spyrna við fótum en algerlega án árangurs.  

Það tók svo endanlega steininn úr þegar litla skottið okkar hún Gyða tók hestabakteríuna á svo háu stigi að engin sýklalyf dugðu á.  Þar sem útséð var um að þetta væri einhver skammtíma sýking, heldur miklu líkara vírussýkingu, var ekki um annað að ræða en að næra þessa bakteríu aðeins og sjá hvert það leiddi okkur. Hún fór í reiðskóla og síðasta vetur fengum við lánaðan hest, hann Hauk, og átti Gyða að sjá um hann yfir veturinn.  Með mikilli aðstoð frá uppáhalds frænku sinni, henni Hönnu Möggu tókst Gyða á við þetta verkefni og aldrei dró úr áhuganum.  

Fyrir þennan vetur höfðum við því verið á höttunum eftir hesti annað hvort til leigu eða til að kaupa.  Við vorum búin að skoða okkur aðeins um þegar hún Hulda stórvinkona okkar og hestasérfræðingur með meiru, hringdi og sagðist hugsanlega vera með hest fyrir okkur.  Eftir að hafa skoðað hestinn með aðstoð sérfróðra hestamanna (Snorra og Hönnu Möggu) var ákveðið að fjárfesta í gripnum og fékkst hann á mjög sanngjörnu verði.  

Um er að ræða leirljósa meri og ég held að hún sé 21 vetra gömul.   Mér fróðari menn um hestamál (sem er c.a. 98% landsmanna) segja að um fínasta kvikindi sé að ræða og þrátt fyrir háan aldur á pappír þá eigi hún alveg nokkur ár inn (held ég hafi notað þennan texta orðrétt á síðasta afmæliskorti hjá frúnni Whistling).  Merin ber nafnið Fífa og var það í fyrsta sinn sem ég gat á einhvern hátt fundið einhverskonar samsömun við hest og mun ég aldrei kalla klárinn annað en FIFA samanber knattspyrnusambandið eða bara Playstation leikurinn Tounge .

Skráðir eigendur af hrossinu eru 2, Gyða Sveinbjörg og Bergur Edgar.  Bergur lætur sér fátt um finnast, á yfirborðinu að minnsta kosti en hinn eigandinn er afar, afar ánægður svo vægt sé til orða tekið. Ef einhver fengi lýsingu af dýrinu frá henni án þess að berja það augum þá myndi sá sami hald að hér væri komin Pegasus sjálfur, vængjaður og  tilbúin til orrustu. Hún fékk að fara einu sinni á bak þegar Fífa kom til sinna nýju heimkynna og tók sig bara vel út. 

Í vetur verður því áframhald á hestamennsku hjá fjölskyldunni á Þverholti 7, eða alla veganna hjá 75% ábúenda. 

 

Kv.

Kej


Áttatíu prósent !

Um daginn fór ég  að velta fyrir mér hve 80 prósent er rosalega há tala.  Áttatíu prósent Shocking.  Það er 8 af hverjum 10.  Það er líka 80 af hverjum 100.  Það er svakalega mikið.  

10 ástfangin pör ákveða að gifta sig.  Lífið tekur fagnandi á móti þeim utan við kirkjudyrnar brosandi og fullt af eftirvæntingu.  Hvíslar í eyru þeirra: komið þið með mér og skiljið áhyggjurnar eftir hjá hrísgrjónunum hér við kirkjudyrnar, þetta verður æðislegt hjá okkur. Öll pörin eru með lífshandritið í vasanum og öll eru þau búin að  lesa það oft og mörgum sinnum yfir. Handritið sem þau lásu var rómantískur gamanleikur með dramatísku ívafi en þó leyfilegt öllum aldurshópum.  Myndi vera með hvítu merki ef sýnt væri á RÚV. 

Þegar brúðkaupsbrímanum léttir og pörin taka sér stöðu á leiksviði lífsins vill svo illa til að öll þessi pör eru ekki bara í röngu leikriti heldur eru þau líka í vitlausu leikhúsi.   Þegar tjaldið er dregið frá reyna þau öll af fremsta megni og kunnáttu að spinna sig áfram í gegn um leikverkið þrátt fyrir að kannast ekkert við handritið, en það reynist þeim flestum á endanum of erfitt.  Leikritið sem þau eru skyndilega stödd í  reynist vera hádramatískur farsi með grín og hryllingsívafi og er bæði of þungt og of ókunnugt, og þau ná engan vegin nógu góðri tengingu við samleikarann. 8 af þessum hjónum ákveða því að segja skilið við þetta erfiða og þunga leikrit og flest gefast þau upp fyrir hlé.  

Þetta virðist vera sá raunveruleiki sem foreldrar einhverfra barna þurfa að horfast í augu við. Skilnaðartíðni hjá slíkum foreldrum er sagður vera um 80 % og er stundum talað um allt að 85-90% skilnaðartíðni.  Þetta eru fáránlega háar tölur og eiginlega alveg með ólíkindum. Reyndar hefur mér ekki enn tekist að finna haldbærar rannsóknir sem styðja þessar tölur og ég veit ekki til þess að gerð hafi verið slík könnun á Íslandi.  Engu að síður er 80% sú tala sem alltaf kemur upp þegar verið er að ræða um skilnaðartíðni hjá foreldrum einhverfra barna, á vefsíðum í spjallþáttum, á CNN og á fleiri miðlum. Ég veit að NAA (National Autism Association) í USA  hefur hrint af stað sérstöku átaki til að berjast gegn þessari fáránlega háu tölu.  

En hvað getur skýrt þessa gríðarlegu háu skilnaðartíðni.  Nánast undantekningarlaust er það pabbinn sem "gengur í burtu" og mamman "verður eftir" með fatlaða barnið.  Hvers vegna ? Er þessum feðrum sama um velferð barnsins síns ?  Var ástin ekki sterkari en þetta í upphafi ? Eru þetta bara einhverir skíthælar sem mamman er betur komin án ? 

Þar sem svo illa vill til að ég er hvorki alvitur né hef í fórum mínum kristalskúlu þá get ég því miður ekki svarað þessum spurningum.  Ég get aftur á móti talað aðeins af eigin reynslu þar sem ég er einmitt einn þessara leikara sem nú stendur á ókunnugu leiksviði með vitlaust handrit í rassvasanum.   Leikverkið sem ég er í er komið nokkuð á veg, 13 leikþáttur nýlega hafin og er ég aðeins farin að átta mig á aðstæðum í leikhúsinu. Farin að sjá hverjir af áhorfendum eru okkur hliðhollir og hverjir ætla bara að horfa á.  Sumir horfa reyndar bara í aðra átt og virðast engan áhuga hafa á þessu skrítna leikriti og nokkrir gengu út í hléinu.  

Það hafa oft komið stundir í leikritinu þar sem leikfléttan varð of snúin og þung og ég íhugaði alvarlega hvort ég gæti haldið þessu áfram.  Ástæðan hefur aldrei snúist um ást mína á samleikurum mínum, fjölskyldunni minni. Það er nefnilega svolítið merkilegt að á þeim stundum sem sviðsljósin hafa dofnað hvað mest og sviðið verið í  hvað mestu myrkri, þá hefur það aldrei verið vegna þess að mínir samleikarar hafi verið mér of erfiðir eða að ég hafi á einhvern hátt orðið þeim mótfallinn.

Nánast undantekningarlaust er ástæða erfiðleika súrefnisskortur á leiksviðinu.  Það er nefnilega ótrúlega auðvelt að keyra þetta fjölskylduleikrit áfram á fullum krafti en með næstum tóman tank.  Því einhvera hluta vegna er bensínmælirinn það fyrsta sem bilar við þessar aðstæður sem við erum leika við. Og við erum bæði sammála um það að þegar krísa skellur á, í formi depurðar, kvíða eða þunglyndis, þá sjáum við það aldrei fyrir.  Við höfum talað um þetta margoft og reynt að finna leiðir til að mæta svona tímabilum og reyna að sjá þau fyrir á einhvern hátt.  En það hefur reynst okkur erfitt hingað til og ekki til neinar töfralausnir.  

Ég hef líka oft leitt hugan að því hvers vegna við erum enn í 20 prósenta hópnum.  Ég og við erum meðvituð um þessa háu skilnaðartíðni og mikilvægi þess að rækta okkar samband sem hjón og vinir.  Við föllum stundum í þá gryfju að ætla að keyra þetta allt saman á eljunni og hörkunni og verður heimilið þá eins og hálfgerður vinnustaður og fjölskyldan að fyrirtæki. Það er ekki líklegt til árangurs til lengri tíma. Það er algert lykilatriði að við hjónin fáum öðru hvoru smá tíma til að rækta okkar vinskap og ekki síður að rækta okkur sjálf sem einstaklinga. 

En að mínu mati vegur lang þyngst í þessu öllu saman hvaða væntingar þú hefur til lifsins og að geta aðlagað væntingastuðulinn hjá þér eftir því hvaða aðstæður koma upp. Þegar barn fæðist er óhjákvæmilet að það hafi einhver áhrif á lífið hjá foreldrunum og að breyta þurfi einhverjum hlutum.  Ef ég hef t.d. þær væntingar til lífsins að ég muni fá fullan nætusvefn allar nætur þá er líklegt að ég verði fyrir vonbrigðum.  Ef ég aftur á móti geri mér grein fyrir því að ungabarni fylgir allskonar vesen og stúss þá verð ég ekki fyrir eins miklum vonbrigðum. Vandin með að eignast einhverft barn er að mjög erfitt er að átta sig á hvaða væntingar eru raunhæfar.  Við hófum okkar lífsgöngu með væntingarstuðulinn stilltan á normal og urðum eðlilega fyrir ítrekuðum vonbrigðum.  

Þegar við áttuðum okkur á að lækka þyrfti stuðulinn nánast niður í jarðhæð urðu vonbrigðin ekki eins mörg og ekki eins þung. Ég man sérstaklega vel eftir gamlárskvöldi þegar Bergur var c.a. 5-6 ára.  Jól og áramót voru í minum huga tímabil sem einkenndist af gleði og hamingju og án nokkurs vafa skemmtilegasti hluti ársins.  Eftir að Bergur kom til skjalanna fóru þessir dagar að taka á sig aðra mynd og urðu þessir dagar sem áður gengu út á dekur og hvíld að snúast um kvíða og puð.  Mjög erfitt var að fara með hann í jólaboð þar sem hann fiktaði í öllu og skemmdi og kveið okkur yfirleitt mikið fyrir slíkum boðum.  Gamlárskvöld með sínu skaupi, veislumat og kampavínsglasi fannst okkur erfiðast af öllum kvöldum því litli drengurinn hafði engan áhuga á að fylgja þeim áramótahefðum sem  við þekktum.  Hann vildi bara vera úti að skoða raketturnar.  Á þessu kvöldi var einna erfiðast að kyngja þeim brostnu væntingum sem við höfðum til kvöldsins.

Það var síðan eitt kvöld milli jóla og nýárs að við  Inga fórum að tala saman og komumst að því að okkur leið báðum alveg eins. Ég hélt í einfeldni minni að ég væri einn um að finnast þetta og skammaðist mín fyrir að vera að svekkja mig eitthvað á þessu. Við töluðum okkur saman þetta kvöld um að hætta að gera einhverjar óraunhæfar væntingar sem alltaf brugðust.  Í staðinn ætluðum við láta þetta kvöld vera kvöldið hans Bergs og gefa honum alla þá athygli sem hann þyrfti á að halda.  Allar væntingar um að geta setið við veisluborðið og spjallað, spilað saman trivial pursuit eða að horfa á skaupið voru settar í skókassa og geymdar til síðari tíma.  Við vorum í kuldagöllunum mest allt kvöldið og komum rétt aðeins inn til að hlýja okkur smá og stinga upp í okkur stöku konfektmola.  Skemmst er frá því að segja að þetta kvöld var frábært og kenndi okkur þessa rosalega mikilvægu lexíu að vera ekki að vænta einhvers sem er ekki til staðar.

Við höfum eftir þetta örlagaríka gamlárskvöld reynt að vera meðvituð um að væntingarstuðullinn sé alltaf í réttri hæð og fært hann til eftir því sem við á. Stundum fer hann niður en stundum líka upp.  Um daginn færði ég hann t.d. upp um einn heilann með því að kaupa áskrift að enska boltanum í vetur.  Því þrátt fyrir mjög mikin áhuga á enska boltanum þá hefur það hingað til ekki verið raunhæft að vænta þess að geta horft á heilan leik í sjónvarpinu. Nú hinsvegar er 13 ára ungilngurinn farinn að setjast hjá pabba sínum og spyrja hver sé staðan.

Því ætla ég að leyfa mér að vænta þess að geta fylgst með enska boltanum í vetur og það finnst mér frábært.  Það eru svona litlir sigrar sem eru mikilvægir. Wink

Kv.

Kej


Ljósanótt að baki, áramótin framundan.

Jæja þá er ljósanóttin komin og farin og verður að segjast að hún stóðst þær væntingar sem þessi fjölskylda gerði til hennar . Við hjónin kíktum á hina og þessa viðburði, listsýningar og tónleika, fórum í árgangagönguna ofl. Gyða fór nokkrar salibunur í fallturninum og Bergur fékk sína langþráðu flugeldasýningu. Sýningin stóðst væntingar flugeldafræðingsins  unga og gott betur og ég verð eiginlega að viðurkenna að ég eyddi ekki minni tíma í að horfa á hrifninguna Joyful í andliti sonar míns en að góna upp í himininn þær mínútur sem sýningin stóð yfir.

Og þá er ekki seinna vænna að byrja að hlakka til áramótanna, eða það finnst Bergi allaveganna.  Almanaksárið hans Bergs skiptist nefnilega í tvo hluta, ljósanótt og gamlárskvöld.  Restin af árinu fer svo í að hlakka til þessar tveggja stórviðburða. 

Ljósanætur fyrri ára hafa þó ekki verið án átaka því að nær undantekningarlaust hefur Bergur brjálast yfir því að flugeldasýningin hafi verið búin og oft hefur engu tauti verið við hann komið.   Pabbi hans hefur þurft að gera sér ferð af næturvaktinni í Leifsstöð til þess að halda á barninu bandbrjáluðu og hágrátandi heim af hátíðarsvæðinu.  Einu sinni var hann svo reiður að hann ætlaði ekki að geta sofnað út af grátekka. Oft hefur þetta verið mjög erfitt og reynt mikið á restina af fjölskyldunni, ekki síst litlu systir hans.  Í ár hinsvegar klappaði okkar maður fyrir flugeldasýningunni, stakk svo höndum í vasa og gekk af stað í áttina að bílnum.  Hafði smá áhyggjur af því hvort hann ætlaði að fara að rigna og hvort við þyrftum að hafa rúðuþurrkurnar á.  Þvílíkur munur og þvílík breyting á þessum unga manni sem er alveg að verða stærri en mamma sín by the way. 

Þegar maður hugsar aðeins til baka þá eru ótal minningar um aðstæður og atburði sem við höfum verið í með hann Berg sem hafa reynt mjög mikið á okkur sem einstaklinga og fjölskyldu líka.  Allskonar hegðun sem telst vera óviðeigandi af okkur hinum sem teljum okkur vera eðlileg, reiði og gleði yfir hlutum sem við þessi venjulegu tökum ekki eftir og allskonar skrítnir hlutir sem stundum auðgar tilveruna en reynir líka oft mikið á. 

Reyndar er mesta togstreitan oftast þegar maður lætur hið viðurkennda norm hafa áhrif á eigin viðbrögð. Þegar maður nær ekki að slökkva á "hvað ætli öðrum finnist" áhyggjum.  Dæmi um þetta er t.d. að fyrir nokkrum árum ákvað ég að athuga hvort ég fengi Berg til að koma með mér á fótboltaleik með Keflavík.  Ætli hann hafi ekki verið c.a. 9 ára gamall og varð hann strax mjög heillaður af öllu því sem fram fór á leiknum. Eins og með flest þá var það ekki það sem hin venjulegi áhorfandi fylgdist með sem greip hann heldur ýmis önnur atriði sem maður spáir ekki svo mikið í sjálfur.  Honum fannst rosalega flott þegar það var spiluð músík í hálfleik og ekki síst þegar hún bergmálaði undir skyggninu. Hvatningarhrópin voru líka í uppáhaldi og eru enn og flott fannst honum þegar leikmenn renndu sér á blautum velli svo að gusaðist úr grasinu. 

En hann hafði ekki þolinmæði í að sitja í 90 mínútur og því fór stór hluti af þessari upplifun í að rölta um svæðið og stundum að gefa frá sér hin ýmsu hljóð eftir því hvort hann var glaður eða reiður yfir einhverju.  Vallargestir horfðu í forundran á þennan undarlega dreng og einnig á pabbann sem rölti á eftir honum og reyndi að hafa einhverja stjórn á honum.  Stundum gekk hann upp að einhverjum og spurði að einhverju sem viðkomandi skildi ekki alveg. Stundum tók hann á rás og þá vonaði maður að hann hlypi allaveganna ekki inn á völlinn. Ég fann það mjög skýrt á þessum tíma að ef ég leyfði sjálfum mér að hafa áhyggjur af því hvað öðrum fyndist þá varð þetta mjög erfitt.  En ef ég gat leitt hjá mér alla hina vallargestina og hvað þeim fyndist þá var þetta ekki eins erfitt.  

Aðalmálið var að Bergi fannst þetta rosalega skemmtilegt og það er nú ekki eins og maður sé sí dettandi um hluti sem honum finnst skemmtilegt að gera.  Því leit ég þannig á að það skipti engu máli hvað mér fyndist um þetta ,aðalmálið var að honum fannst þetta skemmtilegt og því héldum við áfram að fara á leiki. 

Í dag er hann miklu duglegri og ekki eins mikið mál að fara með hann á leik.  Um daginn fór hann á leik með tveimur krökkum sem vinna á Ragnarsseli þeim Ástu Rós og Þóri og gekk alveg glimrandi vel. Eiginlega gekk mun betur heldur en hjá mér.  Bergur sat hjá Puma sveitinni í mestu látunum og var í góðum gír.  Keflavík vann leikinn 3-0 og því var uppáhaldslagið hans Bergs spilað þrisvar sinnum en það er Samba lagið sem er spilað í kerfinu í hvert sinn sem Keflavík skorar.  Þetta gekk svo vel að við erum að spá í að mæta með trommu og kjuða á næsta heimaleik og gerast gestameðlimir í Puma sveitinni með frænda hans Bergs honum Jóhanni Davíð aka Joey drummer. 

Bergur er þó enn líklegur til að draga að sér smá athygli með hegðun sem kannski  stingur aðeins  í stúf en so what ! Whistling

Kv.

Kej

 


Sumarannáll og vetrarmarkmið.

Þá eru skólarnir byrjaðir og að baki er aldeilis frábært sumar.  Ég man varla eftir jafnveðurvænu sumri í langan tíma. Reyndar á ég í huganum margar minningar frá því að ég var polli og í þeim minningum er alltaf gott veður. Meira að segja vetrarminningar eru með logni og nýföllnum snjó. Hvað er það eiginlega ?

En þrátt fyrir gott sumar þá verð ég að viðurkenna að ég verð alltaf pínu fegin þegar fer að hausta og skólarnir byrja.  Ferskur septembermorgun rétt eftir að búið er að rigna, gönguferð í skólann og einhverra hluta vegna er ilmur frá nálægu bakaríi líka í þessari minningu. Eitthvað við þetta Smile.

Bergur gefur lítið út á það að vera byrjaður aftur í skólanum, að minnsta kosti fékkst hann ekkert til að ræða við mig um skólamál í gærkvöldi.  Gyða aftur á móti lét okkur sérstaklega vita að hún hefði eiginlega gert allt rétt í skólanum á fyrsta degi í öðrum bekk. Hún veit nefnilega sem er að foreldrar hennar eru að spá í þann möguleika að kaupa hest fyrir veturinn og ef svo yrði þá væri það með þeim skilmálum að hún yrði dugleg í skólanum. Hún ætlar sko ekki að klikka á sínu Halo.

Við höfðum smá áhyggjur í vor af því hvernig þetta sumar yrði.  Hvort að einhverfur 13 ára drengur hefði nóg fyrir stafni og hvort að við sem foreldrar gætum gert þetta að viðburðarríku og eftirminnilegu sumri fyrir hann.  Einnig lá fyrir að mála þyrfti húsið og að einhver tími og einhverjum góðviðrisdögum yrði að eyða í það verk.  Nú í sumarlok er ekki annað að sjá en að okkur hafi tekist bærilega til. Húsið er allaveganna málað og einhverfur 13 ára drengur hafði nóg fyrir stafni og var bara þokkalegur á geðinu í sumar. 

Fyrir utan ferðalög og  nokkrar lautarferðir fóru sumardagarnir hans í að kanna skordýraríkið, klippa trjágreinar og láta eins og það væri komið haust (einn af uppáhaldsleikjunum hans), körfubolta í innkeyrslunni (þökk sé körfuboltaspjaldinu sem hann fékk í afmælisgjöf frá ömmu og afa) og síðast en ekki síst fótbolta og aftur fótbolta. Við fórum á leiki með Keflavík fylgdumst með EM í sjónvarpinu og fórum flest öll kvöld með boltann með okkur  á þá fótboltavelli sem voru  lausir það kvöldið.  Ef við vorum heppnir fórum við á nýja sparksvæði þeirra Njarðvíkinga (ekki verra ef vatnsúðanir voru líka í gangi) eða upp á Iðavelli.  Nú ef lánið var ekki með okkur enduðum við oftast á gamla Njarðvíkurvellinum.  Stundum tókum við Goða með okkur og fannst honum það ekki leiðinlegt.

Bergur lærði að taka við fyrirgjöfum, spila þríhyrning og hvað stungusendingar eru.  Einnig lærði hann muninn á varnarmanni og sóknarmanni og hvað gerist þegar einhver brýtur á manni.  Síðast en ekki síst lærði hann á gulu og rauðu spjöldin.  Sú þekking var síðan yfirfærð yfir í daglega lífið með lygilega góðum árangri.  Bergur tekur stundum nett geðköst og oft verða jafnt húsmunir sem fjölskyldumeðlimir fyrir hnjaski þegar svo ber við.  Ef honum er sýnt gula spjaldið þá sljákkar núna töluvert í honum og hann veit að rauða spjaldið þýðir eitthvað sem ekki er skemmtilegt eins og þurfa að fara í herbergið sitt að jafna sig.  Ef hann er sendur inn í herbergi án þess að fá spjald þá verður hann mjög reiður og leggur jafnvel herbergið sitt í rúst.  En ef hann fær gult eða rautt spjald þá verður hann ekki eins reiður. Við segjum bara já takk við því. 

Fram undan er veturinn með öllum sínum geðhæðum og lægðum og af einhverjum ástæðum hef ég verið að finna hjá mér mikla þörf á að skipuleggja og setja mér markmið fyrir veturinn.  Þetta er afar ólíkt mér því  að öllu jöfnu er ég óskipulagður, gleyminn og ekki mikið fyrir að hugsa langt fram í tímann. En eigum við ekki að segja að batnandi manni sé best að lifa og aðalmarkmið mitt í vetur verður að mæta betur erfiðleikum og tímabilum þar sem hin lúmska þoka þunglyndis leggst yfir með engum fyrirboðum líkt og gerðist of oft síðasta vetur.  Það er nefnilega ótrúlega undarlegt hvernig álagsgeðlægðir gera engin boð á undan sér.  Maður heldur að maður sé undir það búin en er það síðan ekki.  Í vetur ætla ég að mæta þessu betur með einu og öðru ráði sem ekki verða tíunduð í þessari færslu.

Við sjáum svo til hvernig það gengur. 

Og svo má ekki gleyma ljósanóttinni sem nú nálgast með sinni langþráðu flugeldasýningu LoL. Þá horfir Bergur hugfangin á himininn og pabbi hans horfir hugfanginn á þessa einlægu og algjöru hrifningu í andliti hans yfir þessu meistaraverki sem ein flugeldasýning er í hans huga. 

Það eru sannkölluð forréttindi að fá að vera vitni að slíku skal ég segja ykkur.

Kv.

Kej.  

 

 


Hlaupi lokið - áheit ekki endurgreidd :)

Takk takk allir þeir sem hétu á mig í 10 km hlaupinu.  Með ykkar aðstoð náði ég að safna 64.000 krónum sem renna til Ragnarssels.  Þetta var meiriháttar.  Við Ása hlupum þetta saman alla leið og þvílík upplifun.  Það var alveg magnað að sjá alla troðfullar götur fyrir framan mann - allskonar fólk og allir að hlaupa 10 km.  Gæsahúð niður í tær.  Það sem var líka alveg magnað var allt fólkið sem stóð hér og þar við hlaupaleiðina og hvatti okkur áfram - maður fékk orku frá þessu fólki.  Í einni götu stóðu þónokkuð margir íbúar á tröppunum með machintosh dósir og sleifar og barði í - aftur gæsahúð Smile.  Mér fannst samt sætast að sjá lítinn gutta sem hélt á stóru plakati og á því stóð "Áfram mamma" Halo  Eitthvað er álagið á fæturna farið að segja til sín en við Ása kláruðum hlaupið saman fyrir Ragnarssel - og ótrúlegt hvað það hélt manni hlaupandi allan tímann.  Ég var alltaf að hugsa að ég mætti ekki gefast upp því annars fengju þau ekki peninginn - og fyrir vikið varð þetta miklu léttara hlaup en ég átti von á.  Tíminn var svona lala - 1 klst og 20 mín en ég hef tækifæri á að bæta tímann minn í Suðurnesjamaraþoninu sem verður á ljósanótt þann 6. sept (eftir 2 vikur).

Ég er nokkuð spennt að fá að vita hvað safnaðist í það heila því ég held að það hafi verið 10 hlauparar að hlaupa fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum - Frábært.

Enn og aftur takk fyrir stuðninginn - þið voruð frábær.

Inga Sveina


Vandræði með áheit

Það hafa verið ýmiskonar vandræði  með vefsíðu reykjavíkurmaraþonsins og hafa einhverjir lent í vandræðum með að heita á hlaupara Pinch

Virðist sem að Inga Sveina komi ekki alltaf upp þegar nafnið hennar er notað sem leitarskilyrði.  Ég held að það virki samt alltaf ef það er bara farið í reitinn góðgerðarfélag og valið  þroskahjálp á suðurnesjum.  Ekki fylla neitt nafn á hlaupara inn bara smella á leita.  Þá kemur upp listi með öllum hlaupurum sem hlaupa til styrktar þroskahjálp á suðurnesjum og þar á meðal er Inga Sveinbjörg.

Áheitaferlið er semsagt í nokkrum þrepum:

Smella á "heita á hlaupara"

Velja þroskahjálp á suðurnesjum og smella á leita.

Velja Ingu Sveinbjörgu. 

Þegar búið er að smella á Ingu kemur upp gluggi þar sem sett er sú upphæð sem á að heita á hana.  

Næst þarf að setja inn kreditkortaupplýsingar og ég held það þurfi að staðfesta að lokum.

Skemmst frá því að segja að áheitin hrúgast inn og komin alveg gífurleg pressa á hlauparann að ná allaveganna að drattast yfir endamarkið. Whistling

Og fyrir þá sem ætla að heita á kellinguna þá er hægt að gera það hérna.  

Kv.

Kej.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir
Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Þetta blogg er dagbók 4 manna fjölskyldu í Reykjanesbæ.

Upphaflega var hugmyndin með þessu bloggi að leyfa áhugasömum að fylgjast með framvindu þjálfunar á border collie hundi sem við fengum um árámótin 2008. Markmið þjálfunar var m.a. að kenna hundinum honum Goða að passa upp á hann Berg sem er einhverfur 13 ára drengur. Við vildum líka geta horft til baka og skoðað þetta aðeins í baksýnisspeglinum. 

Bloggið hefur síðan þróast aðeins  og hinar og þessar hugleiðingar hafa dottið hingað inn og ekkert endilega tengdar honum Goða sem bloggið er þó nefnt í höfuðið á. 

Allir þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með okkur og jafnvel koma með innlegg eru velkomnir. Fjölskyldumeðlimir eru:

Kristinn Edgar Jóhannsson

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir

Bergur Edgar Kristinsson

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Goði Freyr Gyðuson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Teppi
  • Hetta
  • ...imag0101
  • ...090228_2_31
  • ...skur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband